Jacob’s Creek Winemaker’s Shir<z er ástralskur Shiraz út í gegn. Dökkt á lit, í nefinu dimmur og sætur dökkur ávöxtur, aðallega plóma og dökk ber, töluvert, kryddað, mynta og súkkulaði, minnti stundum svolítið á Pipp-súkkulaði, lakkrís, múskat. Nokkuð kraftmikið, heitt og mjúkt en með góðan strúktúr. Vín sem hentar vel með grillréttum í BBQ-sósu.
2.999 krónur.