La Fiole Cotes du Rhone 2011

Vínin frá Cotes du Rhone eru að mörgu leyti hin dæmigerðu frönsku rauðvín og sameina norðrið og suðrið enda ræktuð nálægt 45. breiddargráðunni þar sem miðjarðarhafsloftslagið byrjar að taka við af meginlandsloftslaginu. Vínið er frá vínhúsinu Pére Anselme en eitt helsta tákn þeirra eru „sveigðu“ flöskurnar.

Heitt og sólbakað í nefi, dökkur ávöxtur, dökk ber, plómur, jafnvel út í sveskjur, te, töluvert kryddað. Heitt og kryddað í munni en hefur þó ágæta sýru. Þolir alveg nokkuð kryddaðan mat.

2.498 krónur.

Deila.