Bouchard Ainé Pouilly-Fuissé 2011

Vínhéraðið Pouilly-Fuissé er syðst í Búrgund rétt við borgina Macon. Þetta eru auk Chablis-vínanna þau Búrgundarvín sem hafa notið mestra vinsælda hér á landi enda virðist stíll Pouilly-Fuissé falla einstaklega vel að smekk Íslendinga.

Ferskt, sítrusmikið, sítróna, greip, þurrkaður sítrusbörkur, vanilla, smjör, Góð fylling, nokkuð eikað, feitt með ferskri sýru. Með t.d. humar.

3.998 krónur.

Deila.