Joseph Drouhin Laforet Pinot Noir 2011

Drouhin er eitt af stóru negociant-húsunum í Búrgund og jafnframt eitt af þeim bestu. Það framleiðir vín frá mörgum af bestu þorpum og ekrum Búrgund en einnig þetta ágæta Pinot Noir-vín, sem skilgreint er sem AOC Bourgogne.

Það er eitt af einkennum Pinot Noir að vínin eru yfirleitt nokkuð ljósrauð í litnum og það á við hér. Léttur berjaávöxtur, villt jarðarber, rifsber, svolítið rykugt og jarðbundið, í munni ferskt, sýrumikið, þetta er vín fyrir mat.

2.597 krónur. Góð kaup.

Deila.