Arrogant Frog Chardonnay-Viognier 2012

Engilsaxar hafa stundum notað háðsyrðið „froska“ yfir Frakka sem á móti svara í sömu mynt og kalla Breta „les Rosbifs“. Eins og nafnið á þessu víni gefur til kynna er þessu víni beint á engilsaxneska markaði, það er hins vegar suður-franskt, frá hinu flotta vínhúsi Paul Mas í Languedoc sem gerir sér leik að þessum glósum sem hafa farið á milli fjandvinanna sitt hvorum megin við Ermarsundið.

Vínið er blanda úr tveimur þrúgum, Chardonnay og Viognier, það er hins vegar Viognier sem ræður ferðinni í stílnum. Suðrænn ávöxtur ríkjandi, þroskaðar ferskur, mildar apríkósur, kantalópu-melónur. Fersk sýra í munni, vínið ágætlega þykkt, suðrænt, smá beiskja.

2.290. Mjög góð kaup og fjórðu stjörnuna fær vínið fyrir hlutfall verðs og gæða.

Deila.