La Chablisienne 1er Cru Fourchaume 2011

Fourchaume er ein af ekrunum í Chablis sem flokkast sem Premier Cru vegna einstakra eiginleika sinna.

Þurrt, þurrkaður ávöxtur, sítrus,fíkjur,apríkósur mjög míneralískt, það er smá selta í ávextinum, rismikið, tignarlegt, ferskt og nokkuð sýrumikið. Örlítill vottur af eik sem gefur víninu þyngd. Svakalega flott matarvín. Má geyma í 2-3 ár. Með humar og laxi.

3.799 krónur. Mjög góð kaup

Deila.