Marques de Casa Concha Chardonnay 2011

Marques de Casa Concha línan frá Concha y Toro samanstendur af afskaplega vel gerðum og áreiðanlegum vínum úr meginþrúgum Chile. Þetta Chardonnay-vín víngerðarmannsins Marcelo Papa er frá Limari og var einmitt þessi áragangur m.a. valið besta Chardonnay-vín veraldar í sínum verðflokki af breska tímaritinu Decanter.

Þetta er óneitanlega vel gert vín, Mjög ristað í nefi , reykur, mikil eik. sítrus, melóna,  hitabeltisávöxtur, ananas, stíft og míneralískt, þurrt með þægilegri míneralískri seltu í bland við ávöxtinn. Reynið með góðum humar.

3.099 krónur. Frábær kaup.

Deila.