Hallveig bloggar: Gulrótar- og sætkartöflusúpa með kókos og kóríander

Jæja, það hlaut að koma að því, smjörið og kjötorgían liðin í bili og hér fáið þið óskaplega holla súpuuppskrift í staðinn sem passar vel inn í janúar. Bæði sem hollustufæði eftir steikarbrjálæðið og svo á hún svo vel við á köldum janúarkvöldum þegar kulið næðir inn að beini. Súpan er afskaplega bragðgóð og með henni er gott að hafa eitthvað staðgott brauð, helst súrdeigs.

  • 1 msk kókosolía (að sjálfsögðu má nota aðra olíu, kókosolían gefur samt svo gott bragð)
  • 1 laukur saxaður
  • 3 hvítlauksrif söxuð fínt
  • 1 cm fersk engiferrót söxuð fínt
  • 1 tsk túrmerik
  • 1/2 tsk broddkúmen (cummin)
  • 1 tsk malað kóríander
  • 1/4 tsk chiliduft
  • 5 stórar gulrætur niðursneiddar
  • 1 meðalstór sæt kartafla skorin í bita
  • 750 ml sjóðandi vatn
  • tveir teningar, grænmetis eða kjúklinga. (Ég notaði einn af hvorum í lögnina núna).
  • 2 dósir kókosmjólk
  • maldon salt eftir þörfum
  • ferskt kóríander til að strá yfir

Steikið laukinn, hvítlaukinn, engiferið og kryddin í olíunni í nokkrar mínútur í þykkbotna potti. Setjið gulrætur og sæta kartöflu í pottinn og steikið með í tvær mínútur, bætið svo vatninu, teningunum og kókosmjólkinni  saman við, hitið að suðu og látið malla í hálftíma. Maukið súpuna með töfrasprota eða í smáskömmtum í blandara og saltið ef þörf er á.

Berið fram með fersku niðursöxuðu kóríander.

Deila.