Doppio Passo Primitivo 2012

Primitivo er ein af helstu þrúgum héraðsins Púglía syðst á Ítalíu. Hún er stundum talin vera sama þrúga og hin „kaliforníuska“ Zinfandel en erfðafræðilegar rannsóknir benda til að það sé ekki alveg rétt. Vissulega séu þær náskyldar en líklega báðar afbrigði af króatískri þrúgu.

Þetta er vín sem greinilega kemur af heitu svæði, sólbakaður, dökkur og þurrkaður ávöxtur, sveskjur, sultuð ber, nokkuð kryddað. Mjúkt með sætum ávexti í munni, kryddin og vottur af súkkulaði í lokin.

1.949 krónur.

Deila.