Marques de Riscal Sauvignon Blanc 2012

Spænska vínhúsið Marques de Riscal tengja flestir við rauðu Rioja-vínin. Það hefur hins vegar verið að færa út kvíarnar á síðustu áratugum og framleiðir meðal annars mjög góð og athyglisverð hvítvín í Rueda. Riscal var  fyrsta vínhúsið sem byrjaði að rækta þrúguna Sauvignon Blanc í Rueda fyrir um þrjátíu árum. Stíllinn er meira í ætt við frönsku Sauvignon-vínin, skarpt og ferskt, fremur en nýjaheimsútgáfurnar af þessari sömu þrúgu.

Skarpur, ferskur og grösugur ilmur, kryddjurtir, fennel í bland við töluverðan sítrus. Mjög ferskt í munni, þægileg sýra, gott matarvín, t.d. með bleikju eða lax sem smá sítrónu hefur verði kreist yfir, eða fordrykkur.

1.998 krónur. Mjög góð kaup, fær fjórðu stjörnuna fyrir hlutfall verðs og gæða.

Deila.