Jacob’s Creek Sémillon-Chardonnay 2011

Áströlsku vínin frá Jacob’s Creek þekkja flestir enda eitt þekkta vínvörumerki þeirra Ástrala.  Hér er á ferðinni hvítvín sem er blanda úr tveimur „frönskum“ þrúgum, Sémillon og Chardonnay.

Mild angan af gulum berjum, melónu, blómum og sítrónuberki. Létt með mildri sýru í munni, ágætlega ferskt.

1.999 krónur. Góð kaup.

Deila.