Castelforte Corvina er ítalskt rauðvín frá Veneto, sem í rauðvínum er þekktast fyrir vín frá svæðinu Valpolicella. Corvina er einmitt ein af meginþrúgum Valpolicella-vínanna og óneitanlega minnir þetta vín svolítið á létt Valpolicella.
Angan af sætum rauðum berjum, jarðarberjum kirsuberjum og þarna eru líka hlaupbangsar, „gummybears“. Léttur, sætur ávöxtur, mjög milt.
2.369 krónur.