Þetta er hvítvín frá Katalóníu á Spáni þar sem blandað er saman tveimur þrúgum, hinni spænsku Macabeo (einnig þekkt undir nafninu Viura) og hinni frönsku Chardonnay. Macabeo er raunar einnig ræktuð víða í hinnum katalónska hluta Frakklands í Languedoc.
Létt sítrusangan, smá vottur af gulum eplum, ristaðar möndlur. Nokkuð þurrt, ferskt.
1.699 krónur. Góð kaup.