Trivento Reserve Cabernet Malbec 2012

Rauðu þrúgurnar Malbec og Cabernet Sauvignon eru báðar upprunnar í suðvesturhluta Frakklands. Cabernet í Bordeaux og Malbec í Cahors, þótt hún sé raunar einnig ein af þeim sex þrúgum sem leyfilegt er að nota við framleiðslu rauðra Bordeaux-vín.

Þetta er snorturt og vel gert  vín frá argentínska vínhúsinu Trivento og líkt og flest önnur vín þess merkilega gott fyrir peninginn. Djúpur, dökkur berjaávöxtur í nefi, sólber og þroskaðar plomur í bland við kaffi, púðursykur og vanillu. Ágætur tannínstrúktur, ávaxtaríkt og eikað. Virkilega flott vín í þessum verðflokki.

1.899 krónur.

Deila.