Emiliana er vínhús í Chile sem leggur mikla áherslu á lífræna ræktun og er einn helsti framleiðandi lífrænna vína í heiminum.
Þetta Chardonnay-hvítvín er ungt, mjög ferskt enda af uppskeru ársins 2013, sem er fyrri hluta árs á Suðurhvelinu. Í nefinu kantalópumelónur, ferskjur, apríkósur, í munni nokkuð sætur ávöxtur, gul epli, mild sýra og sæta í bland við ávöxtinn.
1.799 krónur. Mjög góð kaup.