Fleur du Cap Chardonnay 2013

Fleur du Cap er eitt af vínhúsunum sem tengjast Bergkelder, einhverri merkilegustu stofnun suður-afríska víniðnaðarins. Vínhús og vínkjallari sem byggður var við rætur fjallsins Papegaaiberg skammt frá Stellenbosch. Kjallarar Bergkelder teygja sig inn í fjaliið og eru vinsæll áningarstaður ferðamanna.

Bergkelder var opnaður árið 1967 og gegndi mikilvægu hlutverki í nútímavæðingu suður-afrískrar vínframleiðslu á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Mörg af þekktustu vínhúsum Suður-Afríku tengdust þá Bergkelder en nú eru vínin frá Fleur du Cap helsta flaggskip þeirra.

2013-árgangurinn af Fleur du Cap heldur sínu striki, mikill hitabeltisávöxtur í nefi, sætur sítrus, limebörkur, ananas, ferskjur, mikið af vanillu og vanillusykri, mjúkt og örlítið „feitt“ í munni. Ekkert risavín en mjög vel gert og hnökralaust Nýjaheimsvín. Reynið þetta vín með grilluðum humar með rommi og engifer.

1.999 krónur. Frábær kaup.Hálf viðbótarstjarna fyrir hlutfall verðs og gæða.

Deila.