Gustave Lorentz Evidence Riesling 2012

Gustave Lorentz er vínhús í Alsace í Frakklandi sem að sérhæfir sig í framleiðslu á lífrænt ræktuðum vínum.

Þetta er aðlaðandi hvítvín úr Riesling-þrúgunni. Ljóst með mildri angan af hvítum blómum, sítrónuberki í munni mjög mild sýra og örlítil ávaxtasæta, bjart og létt yfir því, mjög þægilegt og heillandi vín. Fínasta sumarvín, t.d. með grillaðri bleikju.

2.956 krónur.

Deila.