Castelforte-vínin frá Valpolicella hafa verið einstaklega vinsæl í Svíþjóð og þetta vín, Parziale Appassimento, hefur verið mest selda „bag-in-box“ rauðvíníð þar í landi. Appassimento þýðir að vín er gert úr þurrkuðum þrúgum rétt eins og Amarone-vín en í þessu tilviki (Parziale) eru þrúgurnar ekki þurrkaðar eins lengi og mikið og í fullburða Appassimento.
Dökkt, angan þung, jörð, svolítið rykugt, kryddjurtir og þurrkaðir ávextir, sveskjur og sólberjasulta. Sætur ávöxtur, nokkur sýra. Mjúkt.
2.355 krónur.