Villa Sandi er með virtustu vínhúsunum þegar kemur að ítalska freyðivíninu Prosecco og er raunar alvöru vínhús þegar kemur að merkingunni hús, en þetta virðulega hús var upphaflega reist árið 1622. Fjölskyldan Moretti Polegato hefur um árabil framleitt Prosecco í Villa Sandi en frá og með árinu 2009 má einungis kalla vín Prosecco DOCG ef þau eru af ekrum á milli þorpanna Vadobbiadene og Colegliano.
Millesimato er ljóst, freyðir þétt og vel og hefur milda ávaxtaangan, svolítið hnetublandaða. Þarna eru epli, en líka blóm, áferðin mjúk, allt að því rjómakennd, ferskt og þurrt. Flott Prosecco.
2.595 krónur. Mjög góð kaup.