Guðný bloggar: Dásamlegur eftirréttur sem slær alltaf í gegn!

Þetta er heitur ávaxta og súkkulaði eftirréttur sem slær alltaf í gegn:

  • 250 gr stökkt múslí
  • 2 epli
  • 1 banana
  • 100 gr hvítt súkkulaði
  • (ég nota oftast súkkulaði frá GREEN & BLACK’S)
  • 100 gr dökkt súkkulaði
  • 1 1/2 msk kanill
  • 2 msk púðursykur (ég notaði agave sýróp)
  • 100 gr smjör

Aðferð:

  1. Epli, banani, súkkulaði og smjör skorið í bita. Allt sett í eldfast mót og blandað saman.
  2. Agave/púðursykur, kanill og músli sett yfir blönduna og hrært saman við.
  3. Hitað í ofni á 175°C í sirka 30 mín. Hrærið einu sinni til tvisvar á meðan rétturinn bakast.

BERIÐ FRAM HEITT MEÐ ÍS, ÞEYTTUM RJÓMA EÐA GRÍSKRI JÓGÚRT!

Deila.