Bodega Juan Gil er með þekktustu vínhúsunum á víngerðarsvæðinu Jumilla í Murcia á Suðaustur-Spáni. Þetta er eitt aðalsvæði þrúgunnar Monastrell sem einhverjir myndu eflaust þekkja undir franska heitinu Mourvédre.
Juan Gil 4 Meses er yngsta vín hússins, vín sem eins og nafnið gefur til kynna hefur verið látið liggja í 4 mánuði á eikartunnum. Þetta er dökkrautt vín á lit, ungur, heitur og þroskaður rauður berjaávöxtur, kirsuber og rifsber, jafnvel út í rúsínur, mikil eik, sæt vanilla og reykur, kryddað. Massívur, kraftmikill og þykkur ávöxtur í munni, heitt, mjúkt með löngum endi. Þetta er vöðvabúnt, vín sem þarf mat sem tekur svolítið á móti.
2.595 krónur. Frábært vín á þessu verði.