Blau 2012

Blau er rauðvín frá vínhúsinu Cellers Can Blau í héraðinu Montsant á Spáni, skammt frá borginni Tarragona  steinsnar frá hinu þekkta svæði Priorat , blanda úr þremur Miðjarðarhafsþrúgum: Carignan, Garnacha og Syrah.

Vínið er dökkt, ungt og heitt. Ávöxturinn einkennist af mjög dökkum berjum, rauðum og svörtum sólberjum, plómum, allt að því þurrkuðum, mild kryddangan og allt umvafið sætri, mjúkri eik. Vínið er ávaxtaríkt en inn í það fléttast áberandi míneralískir tónar. Mjög þykkt, ávöxturinn langur og djúpur. Hörkuvín, enn mjög ungt og því borgar sig tvímælalaust að gefa því smá tíma til að opna sig. Umhellið endilega.

2.895 krónur. Frábær kaup.

Deila.