Montecillo Crianza 2010

Vínin frá Montecillo þarf vart að kynna. Þessi Rioja-vín úr smiðju Osborne-fjölskyldunnar hafa notið mikillar lýðhylli hér á landi frá því að þau komu fyrst á markaðinn.

Vínið einkennist af þroskuðum rauðum berjum, kirsuberjum, rifsberjum, plómur, smá vanilla og reykur, krydd. Fínlegt í munni, byrjandi þroski og eikin hefur samlagast ávextinum vel, mjúk tannín. Milt og þægilegt Rioja-vín. Kjötvín.

1.999 krónur. Góð kaup.

Deila.