Pfaff eru vínin sem að við þekktum áður sem Cave de Pfaffenheim og Pinot Gris vínið er núna komið með skærgulan miða í stað þess sem vínrauða, sem áður prýddi allar flöskur Pfaffenheim.
Vínið er gullið á lit, sæt þægileg angan, ferskjur, sæt melóna, hunang. Í munni nokkuð þykkt, sætur ávöxtur, góð sýra, fínt matarvín, t.d. með hvítu kjöti eða asískum réttum.
2.995 krónur.