Pinot Blanc er ein af klassísku Alsace-þrúgunum en hefur ekki verið nærri eins algeng hér og Riesling, Pinot Gris og Gewurztraminer. Trimbach-fjölskyldan í þorpinu Ribeauville hefur starfrækt eitthvert elsta vínhús héraðsins um aldaraðir og þetta Pinot Blanc.
Vínið er mjög ljóst og tært á lit, angan fersk og þurr, blanda af sítrusberki, límónu, perum og hvítum blómum. Mjög þurrt í munni, þétt með ágætis lengd. Mjög gott matarvín og fellur t.d. vel að fiski, ekki síst ef smá sítróna kemur líka við sögu. Þess vegna með Hollandaise-sósu.
2.399 krónur. Góð kaup.