Delas Crosez-Hermitage „Les Launes“ 2011

Þorpið Tain l’Hermitage í norðurhluta Rónardalsins er umvafið stórkostlegum vínekrum. Hermitage-hæðin sjálf gnæfir yfir þorpið og á láglendinu í kring eru ekrur sem falla undir skilgreininguna Crosez-Hermitage. Þetta eru Syrah-vín að uppistöðu eins og önnur vín á þessu svæði, tignarleg og matvæn.

Það er nokkur jörð í nefi og reykur, krækiber og rabarbari, svöl sýra gefur víninu ferskleika, tannín eru þétt, vínið þurrt og ágætlega djúpt. Með lambi og mildri villibráð.

3.495 krónur. Góð kaup.

Deila.