A Mano Imprint Apassito 2012

Apassito er tækni við víngerð sem er yfirleitt tengd við Veneto en slík vín má þó einnig finna frá fleiri svæðum. Imprint er rauðvín frá Púglía syðst á  Ítalíu og er eitt af vínunum sem þau Mark og Elvira hjá A Mano hafa sett á markað. Auðvitað er loftslagið annað í suðrinu en í norðurhluta Ítalíu og þrúgan sem er notuð er Primitivo, þrúgurnar þurrkaðar að hluta áður en víngerðin sjálf hefst til að ná fram meiri krafti.

Angan af nýmuldu kaffi og þurrkuðum og þroskuðum berjum, kryddað í munni, eikað  mjög mjúkt, örlítið sætt, rúsínur og sveskjur koma þarna fram, í lokin bíta tannín.

2.399 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.