Chateau Teyssier 2010

Það var árið 1994 sem að Jonathan Malthus festi kaup á Chateau Teyssier í Saint-Emilion, tók yfir víngerðina og þróaði fram nokkur ofur-bílskúrsvín sem vöktu heimsathygli. Eitt þeirra, Le Dome, var til dæmis valið besta Saint-Emilion vín ársins ásamt Chateau Ausone af hinu virta víntímariti Decanter.

Vínótekið heimsótti Malthus í Teyssier fyrir nokkrum árum og má lesa um það hér. Teyssier er ennþá akkerið í vínbúskap Malthusar og vínið stendur alltaf fyrir sínu.

Dökkt, þurr og míneralísk angan í fyrstu, sem opnar sig smátt og smátt yfir svartan berjaávöxt, sólber, krækiber í bland við vanillu og lyng. Vínið ungt, þarf tíma (hefur gott af nokkurra ára geymslu) og helst umhellingu. Þétt og tannískt í munni, sviðinn viður, langt.

5.499 krónur. Frábær kaup.

Deila.