Langhe er eitt besta rauðvínssvæði Ítalíu og þar er að finna þorp með einhverjum þekktustu nöfnum vínheimsins, Barolo og Barbaresco. Þrátt fyrir að rauðvín séu uppistaðan framleiða mörg af betri húsunum einnig athyglisverð hvítvín.
Fallega gullið á lit, angan af hálmi, þurrkuðum ferskjum, melónum, geri og saffran. Ágætlega þekkt, kryddað og míneralískt í munni.
3.795 krónur.