Skötuveislan að hefjast á Sjávarbarnum

Þegar Magnús Ingi Magnússon, veitingamaður á Sjávarbarnum, kveikir undir skötupottunum komast allir í jólaskap á Grandagarðinum. Undanfarin ár hefur skötuilmurinn fundist tveimur vikum áður en jólahátíðin gengur í garð, enda Íslendingar sólgnir í skötuna. Hin hefðbundna skötuveisla Magnúsar Inga hefst í hádeginu miðvikudaginn 10. desember og stendur langt fram á Þorláksmessukvöld. Verðið er í lágmarki, 2.800 kr. á mann.

Boðið verður upp á miskæsta skötu – milda, miðlungs og sterka – kæsta tindabykkju, hefðbundna skötustöppu og einnig nýmóðins með hvítlauk, saltfisk, plokkfisk, síldarrétti, grafinn lax og karfa og fjölbreytt meðlæti. Þar ber hæst sérverkaðan hnoðmör frá Hafsteini bónda Guðmundssyni í Flatey, sá sterkari fiðraður sem kallað er.

Líf og fjör er á Facebook-síðu Sjávarbarsins í tilefni skötuveislunnar. Nokkrum heppnum sem taka þátt í örlitlum leik verður boðið í skötu.

Stærri hópar þurfa að panta borð og einstaklingar og minni hópar ættu að hafa það í huga fyrir Þorláksmessu og helgina á undan. Nánari upplýsingar er að finna á vef Sjávarbarsins, sjavarbarinn.is

Deila.