Casello della Sala er sögufrægur kastali í norðurhluta Úmbríu á Ítalíu. Hann er nú í eigu Piero Antinori sem framleiðir þar hvítvín sem flokkuð eru með þeim allra bestu á gjörvallri Ítalíu.
Bramito del Cervo er Chardonnay-vín af Castello della Sala-ekrunni, gult á lit, sætur, suðrænn ávöxtur í nefi, ananas, sítrus, smjör og vanilla. Þétt, feitt, en líka fesk sýra, þurrt og tignarlegt. Glæsilegt hvítvín fyrir humarinn og humarsúpuna.
2.898 krónur. Frábær kaup.