Hito 2010

Hito er rauðvín frá vínhúsinu Cepa 21 í Ribera del Duero á Spáni sem er með nútímalegustu og flottustu vínhúsum svæðisins.

Þetta er yngsta vínið frá Cepa, algjör kraftabolti. Dökkt á lit, nær svart með fjólubláum tónum, sæt og ávaxtamikil angan, sólber, rifsber, töluvert eikað með ferskri vanillu og blómum. Ferskt, ungt og kröftugt, góð sýra, Hrikalega flott vín fyrir peninginn.

2.599 krónur. Frábær kaup, hálf auka stjarna fyrir hlutfall verðs og gæða.

Deila.