A Mano-vínin frá Púglía þarf vart að kynna. Þetta er blanda úr tveimur helstu hvítvínsþrúgum Suður-Ítalíu, Greco og Fiano.
Fallegur gulur litur, þroskaður, grænn og gulur ávöxtur, sítrus, áberandi apríkósur, perur og hvít blómaangan. Mikill ávöxtur í munni, góður ferskleiki með þægilegri sýru.
1.999 krónur. Mjög góð kaup.