Bichot er eitt af stóru „négociant“-húsunum í Búrgund í Frakklandi sem að kaupa vín frá mörgum undirsvæðum og eiga gjarnan eigin ekrur að auki. Það á sér langa sögu og nafnið á þessu víni „Héritage 1831“ vísar til þess að það ár var fyrirtækið stofnað.
Bourgogne Blanc er eins og nafnið bendir til hvítt Búrgundarvín og þrúgan er því Chardonnay. Fallega gult, ljúf angan af sætum ferskjum, sítrónu, nokkur eik, smjörkennd, sæt með vanillu. Í munni nokkuð feitt, ávöxturinn hefur góða dýpt, sætur og þroskaður, umvafinn mjúkri eik, fínleg sýra gefur ferskleika, míneralískt. Mjög dæmigert og vel gert hvítt Búrgundarvín. Vín fyrir t.d. humar eða humarsúpu, þorskhnakka.
2.898 krónur. Mjög góð kaup.