Héritage 1831 heitir þessi lína frá negociant-húsinu Albert Bichot í Búrgund. Þetta er rauðvínið í línunni og að sjálfsögðu Pinot Noir eins og önnu rauðvín þessa héraðs.
Ljósrautt, mild berjaangan, rifs og vottur af kirsuberjum, skógarber, lyng. Vínið hefur nokkurn kryddkeim, milt eikað og ágæt tannín og sýra. Reynið með t.d. önd eða ostum.
2.898 krónur.