Yellow Tail Moscato

Moscato heitir hún á ítölsku og Muscat á frönsku, hvítvínsþrúgan sem yfirleitt er tengd við svolítið sæt vín, hvort sem er í freyðandi formi frá Asti eða örlítið styrktu frá frönsku Miðjarðarhafshéruðunum, t.d. Muscat de Frontignan. Þetta ástralska hvítvín frá Yellow Tail er léttfreyðandi, með mildri sætu. Ágætlega þægileg angan af gulum eplum, ferskjum og blómum. Þetta er mjög létt vín (7,5%), hentar ágætlega mjög vel kælt sem fordrykkur, það er sætt en ekki það sætt að það teljist sem eftirréttarvín, en gæti þó gengið t.d. með ferskum sorbet eða þess vegna sætum austurlenskum réttum.

1.383 krónur.

Deila.