Vínin frá Luis Felipe Edwards eru nýkomin í vínbúðir á Íslandi en þetta er stærsta fjölskyldurekna vínhús Chile.
Þetta er vel gert Chardonnay-vín úr heitu loftslagi, stútfullt af suðrænum ávexti, sætum og þroskuðum sítrónum og greip, melónum, ananas. Í munni ferskt með smá beiskju, örlítið kryddað, fennel.
1.895 krónur. Mjög góð kaup.