Marcel Guigal er hinn ókrýndi konungur Rónardalsins og vínin hans eru undantekningarlaust tæknilega fullkomin og glæsileg. Þekktastur er hann fyrir einnar ekru Cote Rotie-vínin en nánar má lesa um þetta merkilega vínhús með því að smella hér. Chateauneuf-du-Pape vínið frá Guigal er með ríkjandi Grenache í blöndunni, heil 75% ásamt 10% Syrah og 10% Mourvédre auk þess 5% samanstanda af öðrum þrúgum héraðsins.
Dökkt á lit, djúpt, svolítið stíft og lokað í fyrstu, opnar sig hægt og rólega, dökk, krydduð angan, jarðbundið, dökk ber og þroskaðar plómur, sultaður rabarbari, reykur, mór og kryddjurtir. Þarf góðan tíma til að opna sig, gjarnan í karöflu, vín sem má vel geyma í all nokkur ár.
Með rauðu kjöti, bragðmiklum steikum og villibráð.
6.599 krónur. Mjög góð kaup.