Baron de Ley Blanco 2014

Rioja er auðvitað þekktast fyrir rauðvínin sín en þar engu að síður framleidd hvítvín sem sum hver eru bara býsna frambærileg. Algengasta hvíta þrúgan í Rioja er Viura sem einnig er þekkt undir nafninu Macebo. Stílarnir eru í stórum dráttum tveir. Annars vegar nútímaleg, fersk og skörp vín. Hins vegar nokkuð, þung, eikuð og mikil vín sem þola ágætlega margra ára geymslu. Þetta hvítvín frá Baron de Ley er í fyrra stílnum

Mjög ljóst á lit, út í fölgrænt. Í nefi er fullt af sætum, þroskuðum perum og gulum eplum, minir svolítið líka á grænan frostpinna. Þægilegt og ferskt í munni, sætur ávöxtur, þurrt með góðri sýru. Unaðslegt sumarvín, verðið er frábært sem gefur því fjórðu stjörnuna fyrir einstakt hlutfall verðs og gæða.

1.699 krónur. Frábær kaup.

Deila.