Montes Alpha Chardonnay 2013

Þrúgurnar sem notaðar eru í Montes Alpha Chardonnay eru ræktaðar í vínhéraði sem heitir Casablanca og er rétt norður af Santiago, höfuðborg Chile. Eitt helsta einkenni Casablanca er nálægðin við Kyrrahafið og svalt sjávarloftið leggst yfir ekrurnar á nóttunni og kælir niður þrúgurnar. Slíkar aðstæður, sem einnig má finna m.a. í Kaliforníu, tryggja ferskleikann í þrúgunum og eru þetta tilvaldar aðstæður fyrir ræktun hágæða hvítvína.

Bjartur, sætur ávöxtur, sítrusmikill, lime og limebörkur, suðrænir ávextir, ananas, mild eik, smá eldspýtustokkur. Þykkt og mikið, með sætum, löngum ávexti, mildri sýru.

2.998 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.