Vín Perrin-fjölskyldunnar í suðurhluta Frakklands hafa verið fáanleg hér um árabil og nú eru einnig komin í sölu vín úr Nature-seríunni sem eru vín úr lífrænt ræktuðum þrúgum frá Rhone-dalnum, í þessu tilviki Grenache og Syrah-þrúgur.
Þroskuð rauð ber í nefinu, rifsber, rabarbarasulta, út í svartari ber og þrorskaðri, örlítil sveskja, blómaangan, nokkuð kryddað, vottur af lakkrís. Ávöxtur nokkuð þykkur í munni og þar kemur kryddkeimur vínsins betur í ljós. Vín fyrir lambakjöt.
2.667 krónur. Góð kaup.