Los Condes Gran Seleccion 2008

Los Condes Gran Seleccion, er eitt af vínum vínhússins Ramon Roqueta, það kemur frá Pla de Bages, sem er lítið vínræktarsvæði í norðurhluta Katalóníu á Spáni, blanda úr þrúgunum Tempranillo og Cabernet Sauvignon.

Þetta er orðið sjö ára gamalt vín en hefur þó enn yfir sér ferskt yfirbragð, ber árin vel og hefur notað þau til að öðlast aukna dýpt. Ávöxturinn er léttur en heitur, all kryddaður, sólber og brómer, þarna er líka kaffi og súkkulaði en líka reykur. Fínasta vín fyrir þá sem eru að leita að góðu, þroskuðu víni, en jafnframt ódýru.

1.999 krónur. Góð kaup.

Deila.