Roda 1 2007

Vínhúsið Roda er ekki bara eitt besta vínhús Rioja heldur hefur það jafnframt sterka Íslandstengingu í gegnum eigandann Mario Rotlant, sem hefur lengi verið með helstu saltfisksinnflytjendum Spánar og haslaði sér jafnframt fyrir ekki svo löngu völl í íslensku viðskiptalífi með kaupum á Vífilfelli.

Roda er ekki gamalt vínhús. Það var sett á laggirnar árið 1987 og var markmiðið frá upphafi að búa til Rioja-vín í nýjum stíl í hæsta gæðaflokki. Það hefur svo sannarlega tekist. Toppvínið Cirsion er með dýrustu og bestu vínum Rioja og Roda 1 og Roda 2 eru sömuleiðis í toppbaráttunni. Roda er vissulega í öðrum verðflokki en við eigum að venjast þegar Rioja-vin eru annars vegar. Það er hins vegar ekki dýrt miðað við önnur vín, t.d. frá Bordeaux, í sama gæðaflokki. Og þetta vín minnir einmitt svolítið á ´vinin þaðan, tannínuppbygging er sú sama og strúktúrinn. Vínið er dökkt, enn ungt þótt það fari að nálgast áratuginn í aldri. Dökkur,  svartur, þroskaður ávöxtur, rennur saman við eikina, hún er krydduð, balsamiktónar, örlítið sæt, þétt, fast í sér, öflugt og vöðvamikið vín. Umhellið 1-2 klúkkustundum fyrir neyslu. Berið fram með nautakjöti, lambi eða hreindýri.

7.904 krónur. Frábær kaup.

Deila.