Burn Stewart hefur ákveðið að Globus taki við sem umboðsaðili fyrirtækisins á Íslandi. Fyrirtækið er framleiðandi margra af þekktustu viskí-tegundum Skotlands, þar á meðal Scottish Leader sem er mest selda viskí hér á landi.
Hið margverðlaunaða viskí Scottish Leader er það sölumesta frá Burn Stewart . Það er selt í yfir 60 löndum um allan heim. Uppistaða hins blandaða vískí kemur frá hinu fræga Deanston eimingarhúsi sem staðsett er við ána Teith við smábæinn Doune í Sterlingshire rétt norður af Glasgow. Einnig kemur hluti þess frá öðrum frægum eimingarhúsum Burn Stewart eins og t.d. Bunnahabhain á eyjunni Islay og Tobermory / Ledaig á eyjunni Mull.
„Markmið okkar verður að styrkja enn frekar stöðu Scottish Leader á íslenska markaðnum og bjóða neytendum uppá aukið úrval s.s. Signature og síðan 12 ára útgáfu. Scottish Leader kemur til með að taka töluverðum breytingum fljótlega á nýju ári, bæði í útliti og innihaldi þar sem framsetningu er breytt og gæði eru aukin til muna með nýrri blöndu.
Einnig mun Globus bæta við í úrval sitt maltviskí tegundum Burn Stewart : Deanston í Stirlingshire Bunnahabhain frá Islay og Tobermory / Ledaig frá Mull
Globus er stærsti víninnflytjandi landsins og flytur inn fjölmargar þekktar áfengistegundir.