Vínótekið hefur nú fengið sannkallaða andlitslyftingu en í byrjun vikunnar fór nýr og endurbættur vefur í loftið. Markmiðið með nýja vefnum er að hann sé aðgengilegri, skemmtilegri og í alla staði betri en gamli vefurinn.
Efnið á vefnum er það sama en nýji vefurinn nýtir skjáinn betur, letrið er nýtt og örlítið stærra og myndir njóta sín betur en áður. Þá er ein stóra breytingin sú að vefurinn er nú að fullu skalanlegur fyrir farsíma og spjaldtölvur og því mun þægilegra og einfaldara að skoða hann í símanum en áður var. Sömuleiðis bjóðast nú mun fleiri leiðir til að draga fram efnið á vefnum og setja það saman með mismunandi hætti en áður var, lesendum til hægðarauka.
Við vonum að þeir tugþúsundir lesenda sem heimsækja vefinn reglulega kunni að meta þessar breytingar. Ef þið sjáið eitthvað sem mætti betur fara hvetjum við ykkur til að senda póst á vinotek@vinotek.is.
Vínótekið fór upprunalega í loftið í maí 2009 og er þetta þriðja stóra uppfærslan sem gerð hefur verið á vefnum frá þeim tíma þótt vefurinn hafi verið og verði auðvitað áfram í stöðugri þróun. ´Á vefnum er nú að finna á fjórða þúsund uppskriftir, víndóma og greinar um mat, vín og ferðalög.
