Villa Wolf Pinot Gris 2014

Villa WolfVilla Wolf eru vín sem Mósel-gúrúinn Ernst Loosen framleiðir í Pfalz en hann tók yfir vínhúsið árið 1996. Í Pfalz er loftslag aðeins heitara en í Mósel og Pinot-þrúgurnar unar sér bara alveg hreint prýðilega þar.

Þroskuð epli í nefi, smá perur, jafnvel ferskjur. Milt og þægilegt, örlítill vottur af kolsýru sem gefur víninu skemmtilegt, ferskt bit, þurrt og þægilegt.

70%
Mjög góð kaup

2.195 krónur. Flottur Þjóðverji - ekki dæmigerður. Með laxi og bleikju. 

  • 7
Deila.