Warpigs á Mikkeller

Mikkeller & Friends blæs til stórveislu og upphitunar fyrir komandi Bjórhátíð Kex.  Í dag – föstudaginn 12. febrúar – verður glaðningur beint frá Warpigs í Kaupmannahöfn en 5 mismunandi bjórar verða á krana frá þessum vinsæla bruggpöbb. Warpigs er í eigu Mikkeller og Three Floyds og er staðsettur í gamalli kjötvinnslu í Ködbyen í Kaupmannahöfn. Frá opnun hefur hann verið gríðarlega vinsæll og margrómaður fyrir frábæra bjóra. Einnig verður á krana splunkunýr double IPA frá Mikkeller sem heitir einfaldlega NEW IIPA. Mikkeller eru gríðarlega sáttir með þennan bjór og telja þetta vera besta IPA sem þeir hafa bruggað.

 Það verður mikil humlaveisla í gangi en af 4 af 6 bjórum verða IPA bjórar. Bjórarnir sem verða á krana eru:

  •  Mikkeller NEW IIPA
  • Warpigs Scarf Squad Hveitibjór
  • Warpigs / Cigar City Apple Pie Stout (ásamt Cigar City Brewing frá Tampa)
  • Warpigs Reptilian Overlord IPA
  • Warpigs Booty Call IPA
  • Warpigs Shaky Warrior IPA

Deila.