Dagur Heilags Patreks verndardýrlings Íra St. Patrick’s Day er haldinn hátíðlegur í dag 17. mars á þessu ári. Þetta er einn helsti frídagur Íra og er einnig mikið um dýrðir þar sem innflytjendur af írsku bergi brotnir eru áberandi, s.s. í Boston, Chicago og New York.
Fimmtán barir í miðborg Reykjavíkur verða með sérstaka drykki af þessu tilefni þar sem írsk hráefni á borð við Jameson-viský eru notuð í kokteilana af þessu tilefni og verða drykkirnir í boði út marsmánuð. Við munum auðvitað tékka á þessum kokteilum og fá nokkrar spennandi uppskriftir.
Á meðfylgjandi korti má sjá þá bari sem að taka þátt að þessu sinni.
