Frakkar efna til veislu á veitingastöðum um allan heim næstkomandi mánudag undir merkjum „Gout de France“ sem mætti þýða sem „franska bragðið“. Þann dag munu um 1.700 veitingastaðir i fimm heimsálfum bjóða upp á sex rétta franskan matseðil ásamt frönskum vínum. Samhliða munu frönsk sendiráð í 150 ríkjum efna til veislu.
Sendiherra Frakklands á Íslandi Philippe O’Quin efndi til móttöku á dögunum þar sem matreiðslumennirnir sem taka þátt í Gout de France kynntu nokkra af réttum sínum og matseðlana sem framundan eru.
Þetta er annað árið sem Frakkar efna til Gout de France-veislunnar en frumkvæði að þessu eiga franska utanríkisráðuneytið og stjörnukokkurinn Alain Ducasse. Markmiðið er að minna á og hylla hina frönsku matarhefð, sem hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO frá árinu 2010.
Hugmyndin er hins vegar ekki alveg ný heldur er byggt á hugmynd frá August Escoffier sem skipulagði sælkerakvöldverði „Dîners d’Épicure“ á nokkrum veitingastöðum um allan heim árið 1912. Forskrift Escoffiers var að boðið skyldi upp á fordrykk, kaldan forrétt, heitan forrétt, sjávarrétt, kjötrétt, franska osta og loks eftirrétt úr súkkulaði. Allt borið fram með frönskum vínum að sjálfsögðu.
Gout de France fylgir þessari sömu forskrift. Veitingahúsin eru beðin um að taka saman matseðil í frönskum anda en úr staðbundnum hráefnum þar sem byrjað eru á fordrykk og snittum, næst komi forréttur, síðan aðalréttur, þá franskir ostar og eftirréttur. Að þessu sinni eru það eftirfarandi íslenskir matreiðslumenn og veitingastaðir sem taka þátt. Hægt er að sjá matseðilinn sem er í boði á hverjum stað með því að smella á nafn staðarins:
Sveinn Kjartansson og Aalto Bistro í Norræna húsinu
Friðgeir Ingi Eiríksson og Gallery Restaurant á Hótel Holt
Hákon Már Örvarsson og Kitchen & Wine á 101 Hótel
Stefán Elí Stefánsson og Perlan
Arnar Ingi Magnússon á vín og Skel
Jónas Oddur Björnsson á Haust mun elda í veislu franska sendiherrans.




