Hardy’s Nottage Hill Cabernet-Shiraz 2013

IMG_2006 (3)Það fer að verða hálf öld frá því að ástralska vínhúsið Hardy’s kynnti vínlínuna Nottage Hill til sögunnar en hún er kennd við einn af fulltrúum Hardy’s-fjölskyldunnar, Thomas Hardy Nottage og fyrstu vínin komu af ekrunni Nottage Hill í McLaren Vale fyrir utan Adelaide.

Þetta er hinn ágætasti Ástrali. Vínið dökkt með þykkum, feitum og krydduðum ávexti. Sultaðar plómur og sólber í bland við sæta vanillu, kókos og súkkulaði. Mjúkt og þykkt.

80%

1.999 krónur. Frábær kaup á þessu verði. Tilvalið vín fyrir grillið í sumar.

  • 8
Deila.